Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
| sigmundurh
|
Skráður þann: 06 Nóv 2008 Innlegg: 20
Canon 450 D
|
|
Innlegg: 07 Ágú 2013 - 9:24:34 Efni innleggs: Náttúruljósmyndun |
|
|
Góðan daginn,
Ég er búinn að velta því lengi fyrir mér hvernig maður tekur svona flottar náttúrumyndir. Ég er með Canon 700D og EF-S 17-85mm linsu og er búinn að skoða youtube fram og til baka og einhver ráð frá frægum ljósmyndurum. Ég er búinn að gera mér grein fyrir því að lýsing skiptir miklu máli og það er algjörlega eitthvað sem ég þarf að vinna með. En svo ég nefni einhver dæmi, þá finnst mér þessi mynd ótrúlega flott:
http://coscorrosa.com/wp-content/uploads/iceland_vesturhorn_black_sand_dunes.jpg
Mig langar að kunna að taka flottar ljósmyndir án þess að vera með brenndan himinn eða of dökka fleti. Er þetta spurning um að kaupa rándýr filter frá LEE, eða er þetta vankunnátta mín á eftirvinnslu (lítil sem engin reynsla).
Vitið þið hvort það séu til einhverjir "ljósmyndahópar" sem fara jafnvel og taka myndir af sama viðfangsefninu en vinna myndirnar síðan í sitthvoru lagi og ræða síðan útkomur og gefa hvor öðrum tips?
Á því miður ekki pening til þess að skrá mig á ljósmyndanámskeið, en langar virkilega að verða betri ljósmyndari.
Mbk, Simmi |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| ArnarBergur
| 
Skráður þann: 08 Feb 2009 Innlegg: 7515 Staðsetning: Reykjavík The Sexy thing - 6D
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| abvidars
| 
Skráður þann: 24 Júl 2009 Innlegg: 599 Staðsetning: Akranes Nikon D60
|
|
Innlegg: 07 Ágú 2013 - 14:06:09 Efni innleggs: |
|
|
Í grunninn snýst þetta að að öllu leiti um að hafa auga fyrir mótívum, skilja samspil ljós og skugga og kunna á myndavélina sýna (hvernig L-in þrjú vinna saman : Ljósop-Lokarahraði-Ljósnæmi (iso)
Það eru margir flottir pistlar hér á spjallinu um þessi atriði sem þú ættir að prufa að glugga í.
Langflestar myndir sem þú ert að skoða á netinu eru búnar að fara í gegnum myndvinnsluforrit þar sem mismikið hefur verið átt við þær. Þú getur náð í ansi fínt forrit þér að kostnaðarlausu sem heitir Gimp. Það býður uppá allt sem þú þarft á að halda til að koma þér af stað.
Æfingin skapar meistarann, gangi þér vel  _________________ Ása B
http://www.flickr.com/photos/abvidars/ |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Þrösturn
|
Skráður þann: 18 Sep 2012 Innlegg: 369
Nikon D600
|
|
Innlegg: 07 Ágú 2013 - 16:00:44 Efni innleggs: |
|
|
eg er með d300 nikon og 17-70mm linsu
 |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|