Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
| Skyzo
| 
Skráður þann: 04 Nóv 2006 Innlegg: 378 Staðsetning: Hafnarfjörður Canon 5D Mark II
|
|
Innlegg: 24 Jan 2013 - 18:37:58 Efni innleggs: Dílaskarfar |
|
|
Ákvað að reyna ná myndum af þessum dílaskörfum hérna í Hafnarfirðinum fyrr í dag.
Taldi 25 af þeim á þessu svæði. Einnig rúmlega 7 fugla, 3 tegundir, sem ég á eftir að greina nánar.
Fór hægt og rólega eins nálægt og ég komst, en hefði ég viljað fara lengra hefði ég þurft að skella mér í sjóinn og synda.
Þyrfti nú að verða mér út um fasta 300mm eða eitthvað álíka og extender.  _________________ Heimasíðan
Flickr |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Baddi89
|
Skráður þann: 30 Sep 2012 Innlegg: 111
Canon EOS 7D
|
|
Innlegg: 24 Jan 2013 - 19:04:45 Efni innleggs: |
|
|
Þeir eru flottir þarna skarfarnir. Kíki reglulega á þá, yfirleitt betra að nálgast þá í flóði. Er líka búinn að rekast amk 5x á fálka á þessu svæði síðustu 3 vikurnar en hef ekki enn náð fullnægjandi mynd af honum
Annars flott mynd og mátt endilega deila því hvaða tegundir þú rakst á þegar þú hefur greint þá  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Skyzo
| 
Skráður þann: 04 Nóv 2006 Innlegg: 378 Staðsetning: Hafnarfjörður Canon 5D Mark II
|
|
Innlegg: 24 Jan 2013 - 21:22:58 Efni innleggs: |
|
|
Þeir eru góðir þessir grallarar.
Eflaust betra að nálgast þá í flóði, en ég ákvað að klöngrast þarna eitthvað á þessum skerjum þarna til að komast í færi, og sé ekki eftir því.
Fálka segiru. Ég var að spá einmitt hvað það nú var sem ég sá núna fyrir stuttu, gæti verið sá fálki þá!
Hérna (tengill) getur þú séð hina sem að ég sá, en mig grunar að ég hafi fækkað þessum þrem tegundum niður í tvær ef þetta er rétt hjá mér.
Er ekki með mynd af hinni tegundinni þó þar sem ég var ekki með vélina á þeim tíma, en sá var nær alveg svartur að mig minnir, þó andarlegur. Ekkert áberandi hvítt. _________________ Heimasíðan
Flickr |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Baddi89
|
Skráður þann: 30 Sep 2012 Innlegg: 111
Canon EOS 7D
|
|
Innlegg: 24 Jan 2013 - 21:26:15 Efni innleggs: |
|
|
Já ætli það ekki, hann er mikið búinn að vera þvælast þarna. Sá hann m.a. vera að éta æðarfugl í fjörunni þarna um daginn Annars er mikið af toppöndum þarna líka og nokkrar gulendur, frekar erfitt að mynda þær þarna að vísu, eflaust betri staðir til þess í grenndinni  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|