Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
|
Innlegg: 25 Sep 2012 - 15:42:31 Efni innleggs: Risaprentun (2-3m) |
|
|
Ég elska stórar myndir. Aðrir líka örugglega.
Heima hjá mér er ég með eina sem er ca 2x3m og aðra sem er meira 2x2m. Núna er ég að velta fyrir mér að bæta þriðju og jafnvel fjórðu við sem yrðu í svipuðum stærðarflokki en ég hafði hugsað mér að myndin myndi ná frá gólfi til lofts, við erum því að tala um 2-3 metra á hæð og um 1.5-2 metra á breidd.
Efnislega hafði ég hugsað mér að sleppa sem ódýrast. Hinar myndirnar voru einfaldlega nokkrir tugir A3 blaðsíðna sem voru veggfóðraðar á masonít plötur sem voru boltaðar í veggina. Boltarnir voru þar dýrasti parturinn af myndunum. Gæðin eru auðvitað ekkert svakaleg en þau hentuðu vel og pappírinn mátti alveg krumpast og bólast á nokkrum stöðum, sem gerði myndirnar eiginlega bara betri fyrir vikið.
Efnislega væri pappírinn því alveg góður möguleiki. Hvort og hvernig hann yrði svo settur á masonít, mdf eða plast væri svo aukavalmöguleiki.
Ástæðan fyrir þessari hugleiðingu er sú að núna vil ég auka gæðin aðeins. Þessvegna vil ég ekki hafa banding eða línur í prentinu og hafa þetta samskeytalaust. Litir þyrftu að vera nokkuð nærri lagi líka.
Er samt tilbúinn að skoða svarthvítt ef það hefur mikil áhrif á verðið
Hefur einhver gert eða kannað svipað? _________________ Operation XZ |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| DanSig
| 
Skráður þann: 25 Nóv 2004 Innlegg: 7452 Staðsetning: Reykjavík iPhone 4s
|
|
Innlegg: 26 Sep 2012 - 19:12:29 Efni innleggs: |
|
|
þetta er nú lítið vandamál... einhverntíman séð strætó í umferðinni ?
fyrirtæki sem sjá um bílamerkingar geta prentað þetta fyrir þig, hvort sem er á pappír, sjálflímandi filmu eða hreinlega framkallað myndina beint á vegginn hjá þér... _________________ innlegg mín endurspegla stundum mína persónulegu skoðun og ber ekki að taka of bókstaflega ! |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Flugnörd Umræðuráð | 
Skráður þann: 22 Jún 2006 Innlegg: 3332 Staðsetning: BIRK Canon EOS 5D Mark II
|
|
Innlegg: 26 Sep 2012 - 19:53:00 Efni innleggs: |
|
|
Merking á að geta prentað þetta fyrir þig á eitt blað myndi ég halda.
http://merking.is/index.php
Ég held reyndað að þú sleppir ekki ódýrt frá því... _________________ Þórður Arnar - Ljósmyndari... 865-8943
Canon RÚLAR!!! Flickr URRRRR |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Zoli
| 
Skráður þann: 13 Feb 2011 Innlegg: 618
Canon EOS 400D
|
|
Innlegg: 27 Sep 2012 - 21:01:45 Efni innleggs: |
|
|
Prófaðu að tala við Nýprent á Sauðárkróki |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| pall
| 
Skráður þann: 20 Jan 2005 Innlegg: 679 Staðsetning: Selfoss Canon EOS 6D
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Harry
| 
Skráður þann: 25 Nóv 2008 Innlegg: 840 Staðsetning: Akureyri Canon 5D
|
|
Innlegg: 27 Sep 2012 - 23:10:58 Efni innleggs: |
|
|
Við höfum látið prenta fyrir okkur á segl 3x2 með ótrúlegum árangri. Strengdum það síðan á Tré ramma og heftuðum fast. Þetta stndur úti og heldur ótrúlega vel.
Því miður þá er ég ekki klár á því hver það var sem prentaði en það var gert fyrir sunnan. _________________ Hörður Finnbogason Akureyringur og áhugaljósmyndari. |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|