Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
| lara
| 
Skráður þann: 06 Des 2004 Innlegg: 540 Staðsetning: Ólafsfjörður Canon EOS 5D MKII
|
|
Innlegg: 28 Apr 2011 - 1:19:46 Efni innleggs: Himinn og jörð, ljósmyndasýning Láru Stefánsdóttur |
|
|
Komið þið sæl,
ég er að fara að opna ljósmyndasýningu í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík á laugardaginn kl. 14:00 en sýningin verður opin til 17. maí ef einhver ykkar eigið leið um Tröllaskagann á þeim tíma.
Hugmynd að verkefninu himinn og jörð vaknaði þegar ég var að fara í starfsviðtal til Ólafsfjarðar í janúar 2010. Ég staldraði við í Múlanum og þar blasti Grímsey við en þangað hafði ég komið og notið þess að skoða fallegt landslagið heimsækja góða vini og njóta. En frá Múlanum séð var Grímsey lítill blettur á sjóndeildarhingnum og svo ógnarlítill hluti veraldarinnar á sama tíma og hún er land þeirra sem búa þar og starfa. Sjálf stóð ég að því er mér fannst hátt uppi í Múlanum en vissi að Múlinn er ógnarsmár séður frá Grímsey. Það sem eftir lifði ársins kannaði ég með myndavélinni samhengi himins og jarðar víða á landinu. Staðirnir eru til þó ég sé ekki þar, þeir eru þeim stórir sem búa þar eða horfa upp á þá en þeim smáir sem langt eru frá. Jafnvel hæstu fjöll verða smá allt eftir því hvernig horft er á þau og þá sérstaklega í samhengi við himininn.
Segja má að þessi ljósmyndasería sé óður til himins og jarðar en á sama tíma áminning um að þau viðfangsefni sem virðast okkur stór í núinu eru ef til vill smá þegar við fjarlægjumst þau.
Hér er eitt dæmi af sýningunni:
 _________________ Kær kveðja
Lára |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Nilli
| 
Skráður þann: 08 Okt 2005 Innlegg: 2794 Staðsetning: Í jöklanna skjóli Nikon D3s & Nikon D600
|
|
Innlegg: 28 Apr 2011 - 7:38:44 Efni innleggs: |
|
|
Til hamingju með þetta Lára. Ég myndi koma ef ég væri ekki alveg hinu megin á landinu.
Bkv. Nilli _________________ Þórir N. Kjartansson
http://500px.com/thorirnk |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| lara
| 
Skráður þann: 06 Des 2004 Innlegg: 540 Staðsetning: Ólafsfjörður Canon EOS 5D MKII
|
|
Innlegg: 28 Apr 2011 - 11:18:03 Efni innleggs: |
|
|
Takk fyrir það Nilli, hefði verið virkilega gaman að fá þig! _________________ Kær kveðja
Lára |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Völundur
| 
Skráður þann: 01 Des 2004 Innlegg: 12123
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|