Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
| jonr
| 
Skráður þann: 26 Nóv 2004 Innlegg: 5113 Staðsetning: Shrödinger's box Olympus OMD E-M5
|
|
Innlegg: 20 Sep 2005 - 1:02:45 Efni innleggs: Litir og þess háttar. |
|
|
Ok, ég er búinn að fylgja þessu frábæra skjali frá upphafi til enda, og er nú líklega kominn með mínar 2 myndir á tiff í CMYK coated profile og allar græjur. EN...
Mig langaði að prófa þetta, og setti upp prentarann minn eins og segir í Viðauka 3. Nema hvað myndirnar koma allar út allt of dökkar!
Nú er ég náttúrulega skíthræddur um að þær muni prentast of dökkar í bókinni, er þetta eitthvað sem ég ætti að hafa áhyggjur af, eða er ég að gera einhverja bölvaða vitleysu í prentuninni? _________________ jonr.light.is |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| skipio
| 
Skráður þann: 14 Des 2004 Innlegg: 4972
Ricoh GRD
|
|
Innlegg: 20 Sep 2005 - 17:28:40 Efni innleggs: |
|
|
Er ekki skjárinn hjá þér bara of bjartur?
Annað sem gæti verið er að þú sért að nota vitlausan prófíl fyrir pappírinn eða þá að uppsetningin á prentaranum er eitthvað vitlaus.
Þú manst líka að breyta myndunum ekki í CMYK áður en þú prentar á bleksprautuprentaranum, er það ekki? Þær eiga bara að vera í RGB.
Lítur histogramið annars ekki nokkuð eðlilega út? Ef það er mikið meira af upplýsingum til vinstri en til hægri eru myndirnar að öllum líkindum of dökkar.
Annars geturðu líka fengið svokallað 'proof' í prentsmiðjum eða hjá einhverjum þjónustufyrirtækjum (hef ekki hugmynd um hvar) og á sú prentun að vera nokkuð sambærileg við endanlega útkomu í prentsmiðju.
Og svo er myndir á blaði eðlilega ekki verið jafn bjartar og myndir á tölvuskjá því tölvuskjáirnar lýsa en pappírinn endurkastar ljósi. Svo ef það er ekki bjart inni hjá þér verða myndirnar eðlilega dökkar.
(Eins geta myndir á blaði ekki heldur orðið jafn dökkar og á tölvuskjá útaf sömu ástæðu - svarti liturinn endurkastar alltaf ákveðið miklu ljósi.) _________________ „Að horfa á eitthvað er gjörólíkt því að sjá það.“ - Oscar Wilde |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| eirasi
| 
Skráður þann: 23 Jan 2005 Innlegg: 850 Staðsetning: Helst uppi á fjöllum Nikon D200
|
|
Innlegg: 20 Sep 2005 - 20:51:03 Efni innleggs: |
|
|
Ef ég skil þetta rétt í leiðbeiningunum sem eru hinar stórmerkustu þá getur maður sem sagt séð á skjánum hvernig myndin kemur til með að prentast út í einhverri prentvél. Hann bendir á einhvern prófíl frá Prenttæknistofnun, en er það þá prófíllinn sem er réttur miðað við þá prentvél sem bókin verður prentuð í?
En, sem sagt. Ef það á að notast við þessar leiðbeiningar þá vantar okkur hlýtur að vera prófílinn sem prentvélin er með sem verður notuð til að prenta bókina.
Eða er ég bara eitthvað að bulla? _________________
 |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| skipio
| 
Skráður þann: 14 Des 2004 Innlegg: 4972
Ricoh GRD
|
|
Innlegg: 20 Sep 2005 - 20:56:38 Efni innleggs: |
|
|
eirasi skrifaði: | Ef ég skil þetta rétt í leiðbeiningunum sem eru hinar stórmerkustu þá getur maður sem sagt séð á skjánum hvernig myndin kemur til með að prentast út í einhverri prentvél. Hann bendir á einhvern prófíl frá Prenttæknistofnun, en er það þá prófíllinn sem er réttur miðað við þá prentvél sem bókin verður prentuð í?
En, sem sagt. Ef það á að notast við þessar leiðbeiningar þá vantar okkur hlýtur að vera prófílinn sem prentvélin er með sem verður notuð til að prenta bókina.
Eða er ég bara eitthvað að bulla? |
Íslandsprent vísar á meðaltalsprentprófílinn frá Prenttæknistofnun. _________________ „Að horfa á eitthvað er gjörólíkt því að sjá það.“ - Oscar Wilde |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|