Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
| Hauxon
| 
Skráður þann: 07 Des 2005 Innlegg: 6372 Staðsetning: Skipaskagi Fujifilm X-T1
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 14:58:21 Efni innleggs: (ÞEMA) Norðurljós |
|
|
Ákvað að væri kannski kominn tími í þemaþráð fyrir norðurljós þar sem annar hver póstur þessa dagana er af norðurljósunum. Það væri mjög fínt ef menn póstuðu með myndunum upplýsingar um tæknileg atriði þannig að þráðuinn verði nothæfari til að grúska í seinna meir.
Ég var semsagt enn á fótum um 3 leitið í nótt og ákvað að fara út og athuga hvort að norðurljósin væru eitthvað að sýna sig. Mér til nokkurra vonbrigða var aðeins dauf slikja á himninum og ekki mjög myndavænt. Tók reyndar myndir hægri og vinstri og hef sennilega náð 2-3 ásættanlegum. Þessi er tekin frá Gróttu í suðurátt. Þarna sjáum við ljósin frá Hafnarfirði blandast við norðurljósin. Það mar MUN dimmara á staðnum en virðist vera á myndinni, sá varla handa minna skil. Eitt finnst mér athyglisvert, það er hvernig það myndast skil í borgarljósunum. Spurning hvers vegna það er.
Myndin tekin með Canon 5D og 50/1.4 linsu á f/2.8 og ISO 800 í 24 sekúndur af þrífæti.
 _________________ Hrannar Örn Hauksson |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Json
| 
Skráður þann: 25 Jún 2005 Innlegg: 300 Staðsetning: Reykjavík Canon 350D
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 16:28:43 Efni innleggs: |
|
|
Geðveikur forgrunnur en maður hefur séð norðurljósin mikilfenglegri. Alltaf flott samt að sjá borgarljósin notuð svona. _________________ http://www.go-riding.com |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| bjossilu
| 
Skráður þann: 11 Des 2006 Innlegg: 496 Staðsetning: Akranes Canon EOS 550D/Rebel T2i
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Guffaluff
| 
Skráður þann: 15 Des 2006 Innlegg: 974 Staðsetning: Reykjavík Canon EOS 40D
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 16:33:11 Efni innleggs: |
|
|
Virkilega flott mynd. Magnaður forgrunnur og lýsingin er mjög góð. Skiptir ekki öllu þó norðurljósin séu ekki uber duber sterk, finnst þetta rosalega flott.
Úff hvað ég get ekki beðið þangað til um miðbik janúar, þá verður upgrade-að í SLR vél. Ekki sénst að taka norðurljósamyndir á IXUSnum. _________________ Canon EOS 40D / EF-S 10-22mm / EF 50mm f/1.4 / Tamron 70-300mm / Sigma 18-50mm
Flickrið mitt |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Uggi
| 
Skráður þann: 29 Jan 2006 Innlegg: 337 Staðsetning: Reykjavík Canon 5D Mark II
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 17:18:39 Efni innleggs: |
|
|
Ég gerði mína fyrstu heiðarlegu tilraun til þess að taka norðurljósmyndir í gærnótt og komst að nokkrum staðreyndum:
* Það er nauðsynlegt að hafa góða linsu sem maður getur stillt á óendanlegt - (ég á ekki svoleiðis fínerí)
* Batteríin klárast á no-time (þrátt fyrir fullt BG-E3)
* Held að það sé betra að vera með lægra ISO en 800 og taka á lengri tíma
* Það er ógeðslega kalt á Íslandi
* Þetta er erfiðara en margan grunar
* Það er draugalegt á Þingvöllum um hánótt...
Þetta er sumsé frumraun mín í NL myndatöku.
Var á Þingvöllum í nótt að pissa á mig úr hræðslu, fékk ekkert almennilegt þar og ók Nesjavalla leiðina til baka. Þar er þessi tekin:
Canon 350D, 18-55 kittaranum, á f/5.0 og ISO 800 í 20 sekúndur af þrífæti
 |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Steini
| 
Skráður þann: 15 Júl 2005 Innlegg: 1346 Staðsetning: Reykjavík Olympus
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 17:44:01 Efni innleggs: Re: [ÞEMA]Norðurljós |
|
|
Hauxon skrifaði: | Eitt finnst mér athyglisvert, það er hvernig það myndast skil í borgarljósunum. Spurning hvers vegna það er. |
Ég var einmitt að spá í þetta þegar ég sá myndina þína á flickr. Hvað er þetta? _________________ Kv, Steini
______________________________________
Flickr-ið |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Gauti
| 
Skráður þann: 22 Jan 2005 Innlegg: 466 Staðsetning: á uppleið Canon 20D
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 18:55:39 Efni innleggs: |
|
|
ok nýjustu NL frá mér.
frá því á aðfaranótt föstudags
[img]<a href="http://www.flickr.com/photos/peturgauti/323368526/" title="Photo Sharing"> </a>[/img]
og
[img]<a href="http://www.flickr.com/photos/peturgauti/323368516/" title="Photo Sharing"> </a>[/img]
það var ansi bjart þarna og auðvelt að yfirlýsa forgrunninn. samt var ég með cokin grad.ND filter en það helvíti var alltaf að fá á sig móðu (hef ekki hugmynd um af hverju) og líka alltaf að búa til speglanir í linsunni (flare)
þessar myndir eru báðar nokkuð hratt unnar og sést það aðeins á þeim.
En það var ansi flott að sjá hvernig gufan úr sundlaug kópavogs blandast saman við norðurljósin _________________ Pétur Gauti *** smugmug *** Buzznet*** Dpchallenge.com *** Flickr |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| villinikon
| 
Skráður þann: 22 Nóv 2005 Innlegg: 325
Nikon D200
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 19:02:58 Efni innleggs: |
|
|
Hér er mín Norðurljósamynd, tekin í Skerjafirði:
Tók hana á 30 sek á þrífæti, ISO 200. Svo unnin úr RAW með Capture NX og að lokum löguð aðeins í Photoshop. |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| bjornae
| 
Skráður þann: 31 Jan 2006 Innlegg: 2238 Staðsetning: Búðardalur Canon EOS 1D Mark III
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Diddi Sig.
| 
Skráður þann: 12 Maí 2006 Innlegg: 1363 Staðsetning: Vestmannaeyjar Canon EOS 5D Mark II
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 19:21:25 Efni innleggs: |
|
|
Hér er mín. _________________
 |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| galdur
|
Skráður þann: 18 Jan 2006 Innlegg: 152 Staðsetning: Aldrei á sama stað lengi Canon EOS 350D
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 19:35:32 Efni innleggs: |
|
|
Hér er ein sett saman úr 10 myndum sullað saman með autopanopro og smá yfirferð í ps.Allar myndirnar voru teknar á 20sec 400iso f4 á 17mm.
 _________________ Canon 350dCanon 17-40mm-F4|Canon 50mm F1,8|
http://www.flickr.com/photos/ivarg/
http://www.pbase.com/ivarg |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| kd
|
Skráður þann: 27 Júl 2005 Innlegg: 1928
Nikon F3HP
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 20:47:48 Efni innleggs: |
|
|
Uggi skrifaði: | Ég gerði mína fyrstu heiðarlegu tilraun til þess að taka norðurljósmyndir í gærnótt og komst að nokkrum staðreyndum:
* Það er nauðsynlegt að hafa góða linsu sem maður getur stillt á óendanlegt - (ég á ekki svoleiðis fínerí)
|
Hafðu vélina á manual focus. Snúðu fókushringnum ein langt og hægt er réttsælin á Nikon F mount linusm en rangsælis á Canon til að fókusa á "Fjarkanistan". Snúðu svo fókus hringnum nokkra mm til baka. Ef linsan er stillt á f8-f22 þá ertu skarpur í óendanlegu.
Uggi skrifaði: |
* Batteríin klárast á no-time (þrátt fyrir fullt BG-E3)
|
Batterýið er ekki tómt. Hitaðu það með því að stinga því í innaní vasa og hitaðu það upp. Best kannski að hafa tvö batterý og hafa eitt alltaf innan á þér og þar með heitt. Skiptu svo reglulega á milli batteríanna eftir því sem batteríið í vélinni kólnar.
Uggi skrifaði: |
* Held að það sé betra að vera með lægra ISO en 800 og taka á lengri tíma |
Þarna ertu með "tradeoff" milli þess að fá "startrail" eða lágt noise.
Minna ISO þýðir auðvitað lengri lýsingartíma og þar með meiri séns á startrail. Ef þú villt ekki startrail þá þarftu að halda lýsingartima undir c.a. hálfri mínútu.
Uggi skrifaði: |
* Það er ógeðslega kalt á Íslandi
|
Bara þegar það er ekki hlýtt. _________________ Maður með myndavél. Bright Midday Sun |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| karinn
| 
Skráður þann: 23 Apr 2006 Innlegg: 662
Nikon D300
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 20:50:17 Efni innleggs: |
|
|
geggjuð mynd galdur!!!! _________________ Kári Georgsson
 |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Uggi
| 
Skráður þann: 29 Jan 2006 Innlegg: 337 Staðsetning: Reykjavík Canon 5D Mark II
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 22:22:01 Efni innleggs: |
|
|
Hehe flott svar hjá þér kd.
Það er þá gott að við erum sammála með draugaganginn á Þingvöllum a.m.k
Þú talar um að hafa vélina á Manual Focus og satt og rétt ég var með hana svoleiðis. En ég skil ekki þetta með f8-f22.... þá er ég með ansi stórt ljósop fyrir svonalags myndatöku ekki satt?
og okei, segjum 400 í ISO og málið er dautt  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| kd
|
Skráður þann: 27 Júl 2005 Innlegg: 1928
Nikon F3HP
|
|
Innlegg: 16 Des 2006 - 22:40:28 Efni innleggs: |
|
|
Uggi skrifaði: | Hehe flott svar hjá þér kd.
Það er þá gott að við erum sammála með draugaganginn á Þingvöllum a.m.k
Þú talar um að hafa vélina á Manual Focus og satt og rétt ég var með hana svoleiðis. En ég skil ekki þetta með f8-f22.... þá er ég með ansi stórt ljósop fyrir svonalags myndatöku ekki satt?
og okei, segjum 400 í ISO og málið er dautt  |
Þú meinar lítið ljósop . Allavega ekki mikið ljós sem fer í gegnum linsuna á f22. Leiðbeiningarnar voru kannski ekki beint fyrir noðurljósa myndatöku, heldur hvernig þú getur fókusað á nágrenni "Fjarkanistans".
Aðal málið til að fá mikla dýptarskerpu (sem þú vilt fá ef þú ert að taka myndir af norðurljósum í óendanleikanum og svo kannski með eitthvað í forgrunni sem er kannski nokkra metra frá þér) er að stoppa linsuna aðeins niður og fókusa ekki á óendanlegt.
Flettu upp "hyperfocal distance" t.d. hérna á vefnum og á wikipedia.
Venjulega er linsan focusuð á óendanlegt ef þú skrúfar hana næstum í botn á annan veginn (rættsælis á Nikon og ég held næstum örugglega rangsælis á Canon).
Draugalegt getur vissulega verið, en draugagangur er "state of mind"  _________________ Maður með myndavél. Bright Midday Sun |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|