Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
| alpinus
|
Skráður þann: 13 Júl 2015 Innlegg: 14
|
|
Innlegg: 14 Ágú 2016 - 10:11:21 Efni innleggs: Framköllunarvökvar ending |
|
|
Góðan dag
Fór í Ljósmyndavöruverslun hér í bæ, Rvk, og starfsmaður sagði mér að framköllunarvökvinn, DD-X sem ég vildi kaupa, entist bara í nokkrar vikur þegar búið væri að opna hann og þó hann væri óblandaður. Hef ekki prófað að framkalla áður á hefðbundin hátt en fannst þetta lítil ending, en hann benti mér bara á að gúggla ef ég þyrfti aðrar upplýsingar.
Getið þið eitthvað frætt mig um hvað svona vökvar endast ca og hvernig sé best að geyma þá?
Mbk Hans M |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Villi Kristjáns
| 
Skráður þann: 09 Okt 2005 Innlegg: 722 Staðsetning: Hveragerði Nikon D3200
|
|
Innlegg: 14 Ágú 2016 - 19:05:31 Efni innleggs: |
|
|
Ef þetta er vökvi þá er nú bara nokkuð gott að hann endist í nokkrar vikur.
Það er eðlilegt að framköllunarvökvi oxist við það að loft komist að honum. Hægt er þó að hægja á oxununni. Hægt er að kæla vökvann og halda honum i kæliskáp við væga kælingu, minnka loftrúmtakið og geyma vökvann í framköllunarbrúsa og þrýsta út öllu lofti eftir notkun, og geyma hann á dimmum stað í ljósþéttu íláti. Eftir því sem hann er notaður meira því meira minnkar ending hans því efni í honum ganga í samband við pappírinn og efni úr pappírnum saman við framkallarann, þessi blöndun eyðileggur framkallarann að lokum. _________________ Bloggið mitt og ljósmyndirnar mínar eru á;
http://www.flickr.com/photos/villi_kristjans/ |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Meso
| 
Skráður þann: 28 Feb 2007 Innlegg: 593
Leica M6
|
|
Innlegg: 15 Ágú 2016 - 10:17:04 Efni innleggs: |
|
|
Ef þú ert að stíga fyrstu skref í framköllun mæli ég með Kodak D76, hann er ódýr og einfaldur í notkun.
Ég hef geymt hann blandaðan í 6 mánuði án vandræða, bara geyma hann í brúsa sem hægt er að kreista loftið úr þegar þú notar af honum.
Ilford ID-11 er víst sama formúla en hef ekki prófað hann þar sem d-76 er ódýrari.
Síðast er ég gáði var hann til í Beco í 1 líter kit. _________________ Andri
Flickr |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Villi Kristjáns
| 
Skráður þann: 09 Okt 2005 Innlegg: 722 Staðsetning: Hveragerði Nikon D3200
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| alpinus
|
Skráður þann: 13 Júl 2015 Innlegg: 14
|
|
Innlegg: 10 Jan 2017 - 1:14:16 Efni innleggs: |
|
|
Takk fyrir góðar upplýsingar  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|