Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
| oskar
| 
Skráður þann: 25 Nóv 2004 Innlegg: 9607
Canon 5D Mark III
|
|
Innlegg: 05 Ágú 2014 - 0:08:58 Efni innleggs: Augnablik - sem ekki gleymast (ljósmyndasýning) |
|
|
Augnablik - sem ekki gleymast
-ljósmyndasýning
Hæhæ, ég býð til opnunar á minni fyrstu einkasýningu, þar sem birtar verða ljósmyndir úr heimsreisu sem ég fór í.
Sýningin verður opnuð formlega kl.16.00, laugardaginn 9. ágúst í Perlunni og verður boðið upp á léttar veitingar. Sýningin stendur til 31. ágúst.
Daginn sem sýningin verður opnuð munu stuttar sögur sem tilheyra hverri mynd á sýningunni, birtast á vefsíðunni www.moment.is/syning Þar verður einnig hægt að skoða myndirnar á sýningunni auk töluvert fleiri ljósmynda úr heimsreisunni.
Ykkur öllum boðið að vera viðstödd opnunina, nú eða að kíkja við einhverntímann á meðan sýningin stendur. Mér þætti frábært væri að fá skráningar hér til þess að meta fjölda: https://www.facebook.com/events/663674453708006/
Hlakka til að sjá ykkur flest!
Óskar Páll Elfarsson |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| oskar
| 
Skráður þann: 25 Nóv 2004 Innlegg: 9607
Canon 5D Mark III
|
|
Innlegg: 08 Ágú 2014 - 9:14:10 Efni innleggs: |
|
|
Ég ætla að gerast svo óforskammaður að troða þessu aftur efst á síðuna, sé ykkur öll á laugardag kl 16 ! |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| BenniH
| 
Skráður þann: 09 Ágú 2009 Innlegg: 169 Staðsetning: Reykjavík Canon 5D Mark III
|
|
Innlegg: 09 Ágú 2014 - 18:56:17 Efni innleggs: |
|
|
Ég kíkti á sýninguna í dag, takk kærlega fyrir mig, þetta er frábær sýning sem ég hvet alla til að skoða.
Myndirnar eru einstakar, vel unnar og teknar af mikilli næmni fyrir aðstæðum. Nauðsynlegt að lesa myndatextann með hverri mynd, vel skrifaður textinn veitir manni innsýn í ævintýrið sem þessi heimsreisa hefur verið.
Til hamingju Óskar _________________ http://www.flickr.com/photos/benni65/
Canon EOS 5D Mark III; Canon EOS 7D; EF 16-35mm f/2.8 L II USM; EF 24-105mm f/4 L IS USM; EF 70-200mm f/2.8 L IS II USM; EF 100-400mm f/4.5-5.6 L IS USM; EF 100mm f/2.8 L IS USM Macro; Canon Speedlite 600EX-RT |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| i_fly
| 
Skráður þann: 30 Des 2005 Innlegg: 2658 Staðsetning: Kópavogur Canon EOS 5D Mark-III
|
|
Innlegg: 10 Ágú 2014 - 9:23:04 Efni innleggs: |
|
|
Ég þáði boð Óskar Páls og mætti við opnun sýningarinnar hans í Perlunni í gær.
Ég skal bara viðurkenna hreint út - ég varð agndofa eitt augnablik.
Strákurinn hefur sett saman fantaflotta sýningu þar sem þrjú lykilatriði spila saman:
a) Aldeilis afbragðs ljósmyndun, einkum og sér í lagi þar sem honum hefur tekist að ná mjög einlægum og sterkum mannlífsmyndum
b) Sterk, og á köflum djörf grátónavinnsla sem virkilega lyftir myndefninu og dregur vel fram andblæ og meginefni myndar.
c) Vandað stórprent og innrömmun sem undirstrikar og lyftir myndefninu enn frekar.
Óskar Páll hafði á orði við opnun sýningarinnar að þetta væri stór stund fyrir sig, hér væri hann að reyna að koma fram sem "fullorðinn ljósmyndari"
Það má svo sem velta fyrir sér hvað felst í því að vera "fullorðinn ljósmyndari" og hvort það er í sjálfu sér eftirsóknarvert - en mér sýnist hins vegar augljóst að Óskar Páll er klárlega FLOTTUR ljósmyndari, og það hygg ég að sé nú aðalatriðið þegar upp er staðið. Og mér sýnist líka að um leið og honum hefur tekist að setja upp afbragðs sýningu, þá hafi hann sett sig í þá stöðu að þurfa að taka verulega á ef hann ætlar að toppa sjálfan sig eftir þetta.
Takk fyrir flotta sýningu Óskar Páll - og hjartanlega til hamingju !!! _________________ Páll Guðjónsson
http://www.flickr.com/photos/i_fly/
https://500px.com/pall_gudjonsson
http://pallgudjonsson.zenfolio.com/
Síðast breytt af i_fly þann 20 Ágú 2014 - 15:57:03, breytt 2 sinnum samtals |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| kazi66
|
Skráður þann: 10 Ágú 2007 Innlegg: 35 Staðsetning: Akranes Canon
|
|
Innlegg: 10 Ágú 2014 - 15:36:48 Efni innleggs: |
|
|
Fór á sýninguna áðan, og er enn alveg orðlaus yfir stórverkunum sem þar eru að sjá.
Innilega til hamingju Óskar Páll með þessa sýningu! _________________ Loksins eftir öll þessi ár...Kveðja Guðbjörg
http://www.flickr.com/photos/gben/ |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| jonfri
|
Skráður þann: 14 Maí 2014 Innlegg: 112
Leica
|
|
Innlegg: 20 Ágú 2014 - 12:40:12 Efni innleggs: |
|
|
stórskemmtilegar myndir |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Vala Run
| 
Skráður þann: 11 Apr 2006 Innlegg: 4876 Staðsetning: Reykjavík Canon 40D
|
|
Innlegg: 20 Ágú 2014 - 15:33:02 Efni innleggs: |
|
|
Við mæðgurnar fórum um daginn og ætlum að fara aftur í betra næði
Stórglæsilegar myndir hjá Óskari og ég hef reyndar alltaf sagt að hann sé snillingur með myndavélina það verður ekki tekið af honum  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| oskar
| 
Skráður þann: 25 Nóv 2004 Innlegg: 9607
Canon 5D Mark III
|
|
Innlegg: 21 Ágú 2014 - 21:20:09 Efni innleggs: |
|
|
Hæ
Takk æðislega og yndislega fyrir falleg orð! Maður roðnar smá og verður meyr...
Ég minni á að sýningin er opin yfir menningarnótt og alla leið til mánaðarmóta  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Gulli Vals
| 
Skráður þann: 06 Apr 2011 Innlegg: 858
Canon 5D Mark II
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|