Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
| Odinn Dagur
| 
Skráður þann: 18 Sep 2008 Innlegg: 262 Staðsetning: RVK Canon EOS 70D
|
|
Innlegg: 02 Jún 2013 - 2:33:55 Efni innleggs: Betra að of- eða vanframkalla? |
|
|
Ég er með nokkrar filmur sem ég þarf að framkalla, þar af 2x Ilford HP5. Ég man eftir að ein var tekin á ASA 400 og er ekki viss hvort hin sé líka tekin á 400 eða hvort ég hafi ætlað að 'ýta' henni upp í 800. Hvort er sniðugra að ganga út frá því að báðar séu 400 eða báðar 800?
Vona að þetta sé nógu vel útskýrt.
Takk!
-Óðinn Dagur _________________ http://www.flickr.com/photos/odinn_dagur |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| totifoto
| 
Skráður þann: 11 Des 2004 Innlegg: 6860
|
|
Innlegg: 02 Jún 2013 - 10:15:34 Efni innleggs: |
|
|
HP5 er sveigjanleg filma og hvort sem þú gerir að þá áttu eftir að fá myndir á filmuna.
Það fer líka dálítið eftir því hvaða framkallara þú notar. Til dæmis ef þú ert að nota XTOL að þá munar um 3.5 mínútum á framköllunartímanaum ef þú ert að taka filmuna á 800. Ef þú notar svo til dæmis ILFOSOL 3 að þá er að muna allt að 7 mínútum, Ilfosol er reyndar ekki eins sterkur framkallari.
Ég sjálfur yfirframkalla alltaf mínar filmur, stundum bara um 2 min og stundum allt að 5-6 mínútur, fer eftir því hvernig ég tók filmuna og hvað ég er að sækjast eftir í endaniðrustöðunni.
Held að það væri bara best að fara einhvern milliveg. Ef uppskriftin segir til dæmis 10 min á iso 400 og 15 min á iso 800 að framkalla bara báðar í 12-13 min. færð pottþétt myndir á báðar filmurnar enda er HP5 sveigjaneg eins og ég sagði. |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Odinn Dagur
| 
Skráður þann: 18 Sep 2008 Innlegg: 262 Staðsetning: RVK Canon EOS 70D
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Villi Kristjáns
| 
Skráður þann: 09 Okt 2005 Innlegg: 722 Staðsetning: Hveragerði Nikon D3200
|
|
Innlegg: 03 Jún 2013 - 10:38:36 Efni innleggs: |
|
|
Ég notaði Ilford filmurnar í eina tíð og offramkallaði oftast um 15-30 sek. með Kodak D76 eða HC110. Ekki meira. Það var alveg nóg. totifoto afhverju svona mikið, þær verða nánast massífar ? _________________ Bloggið mitt og ljósmyndirnar mínar eru á;
http://www.flickr.com/photos/villi_kristjans/ |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Tryptophan
| 
Skráður þann: 23 Apr 2007 Innlegg: 4777 Staðsetning: fjær en capa webcam 2,0mpx
|
|
Innlegg: 03 Jún 2013 - 17:32:37 Efni innleggs: |
|
|
Þú gætir líka framkallað aðeins of lengi, en sleppt því að agitera undir lok framköllunarinnar. _________________ kv. W |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| totifoto
| 
Skráður þann: 11 Des 2004 Innlegg: 6860
|
|
Innlegg: 03 Jún 2013 - 21:16:11 Efni innleggs: |
|
|
Perlukafari skrifaði: | Ég notaði Ilford filmurnar í eina tíð og offramkallaði oftast um 15-30 sek. með Kodak D76 eða HC110. Ekki meira. Það var alveg nóg. totifoto afhverju svona mikið, þær verða nánast massífar ? |
Fæ meiri contrast í þær. Annars er ég aðalega að skjóta á Kodak Trix og hún er laaaang sveigjanlegasta filman og þolir svona meðhöndlun auðveldlega. |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|