Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
| Micaya
| 
Skráður þann: 17 Des 2009 Innlegg: 5015
|
|
Innlegg: 15 Feb 2013 - 20:07:10 Efni innleggs: Innlegg 4444 og sjálfskynning |
|
|
Jæja. Það er sjálfskynningabylgja núna. Best er að taka þátt (loksins...)
Díana er nafnið. Fædd og alin upp á Spáni, en með íslenskt hjarta og sál. Ég kom hingað fyrir tæp 17 árum síðan vegna fegurðar landsins, sem ég var ásfangin af frá því að ég var unglingur og sá mynd í blaði, tekin við fjöruna í Vík í Mýrdal.
Ljósmyndaáhuginn minn er ekki vegna ljósmyndunar. Sá áhugi sprettur eiginlega vegna áhugans á að mála. Ég var talin hafa einhverja "alvöru" hæfileika þegar ég var krakki. Svo tók ég þátt í keppni, þá var ég 14 ára, og fékk 3. sæti. Þetta var landskeppni skólakrakka á Spáni, og myndin mín var teiknuð með vaxlitum - sólarlag í sterkum sílúetum og kontrast.
En ég er víst löt í að standa fyrir framan striga og eyða vikum eða mánuðum í eina hugmynd. Digital heimurinn opnaði mér dyrnar til að framkvæma það sem hugurinn skapaði - og það í stórum stíl.
Ég helltist ekki í þennan heim ljósmyndunar fyrr en ég náði merkri mynd, svoldið fyrir tilviljun, en ekki án hæfileika, af Valhöll í logandi ljósum, frá flugvél. Fréttablaðið keypi hana til birtingar, og þeir settu hana á forsíðu. Þarna ákvað ég að tími væri kominn til að fá sér betri myndavél.
Myndavél, jæja. Og svo þrífót. Filtera. Gikksnúru. Aðra linsu. Flass. Tölum nú ekki um að læra á allt þetta, og svo myndvinnsluferlið. Og svo bara áfram og áfram. Samt er ég í þessu vegna myndanna, frekar en græjufíkn, þó að sá partur er líka til staðar að einhverju leiti. Sem atvinna stunda ég vefstjórn, en hef alltaf starfað í ferðabransaranum.
Og talandi um græjur. Margir sem kynna sig segja endilega hvaða ljósmyndadót þeir eiga. En það skiptir engu máli hvað maður er með, held ég. Þetta eru bara leikföng og tólar. Ég er alla vegana ekki í full frame, og það eftir að hafa íhugað (og prófað!) kostina og galla mjög mjög vel. Sem stendur eru gallar full frame aðeins þyngri en kostirnir, fyrir mig (og ég er ekki endilega að tala um kostnaðinn, auðvitað) [PS: langt síðan við höfum FF vs. crop þráð... ef e-r nennir að stofna svoleiðis...]
Jæja. Þetta var 'stutta' kynningin mín...  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| jho
| 
Skráður þann: 17 Mar 2012 Innlegg: 1161 Staðsetning: Akranes Canon EOS 5D Mark-III
|
|
Innlegg: 15 Feb 2013 - 20:34:07 Efni innleggs: |
|
|
gaman að vita hver þú ert loksins. Ein af þeim sem hefur hvað mest áhrif á hvernig ég nágast þessa hrikalegu dellu og sú sem hjálpar hvað mest með góðri og uppbyggilegri gagnrýni. Þú ert fyrirmynd. _________________ Kveðja, Jónas
http://www.flickr.com/photos/jonas-ottos/ |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| EssPé
| 
Skráður þann: 06 Okt 2009 Innlegg: 364 Staðsetning: Reykjavík Canon 7D
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| torfi01
| 
Skráður þann: 16 Ágú 2010 Innlegg: 938 Staðsetning: Reykjavík *Besta vél í heimi*
|
|
Innlegg: 15 Feb 2013 - 21:13:01 Efni innleggs: |
|
|
gaman þegar reynsluboltarnir kynna sig. þú ert mikill áhrifavaldur hérna. Keep up the good work _________________ Flicker dótið mitt |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Nocturne
| 
Skráður þann: 13 Nóv 2009 Innlegg: 747 Staðsetning: Hafnarfjörður Canon 5D Mark III
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| ArnarBergur
| 
Skráður þann: 08 Feb 2009 Innlegg: 7515 Staðsetning: Reykjavík The Sexy thing - 6D
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Nilli
| 
Skráður þann: 08 Okt 2005 Innlegg: 2794 Staðsetning: Í jöklanna skjóli Nikon D3s & Nikon D600
|
|
Innlegg: 15 Feb 2013 - 22:16:53 Efni innleggs: |
|
|
Takk fyrir þessa góðu kynningu. Gaman að heyra þetta með myndina úr Víkurfjöru  _________________ Þórir N. Kjartansson
http://500px.com/thorirnk |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| BGÁ
| 
Skráður þann: 14 Mar 2007 Innlegg: 3543 Staðsetning: Reykjavik Canon EOS 3
|
|
Innlegg: 15 Feb 2013 - 22:39:23 Efni innleggs: |
|
|
Velkomin. |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Kjartan Guðmundur
| 
Skráður þann: 29 Jan 2013 Innlegg: 601 Staðsetning: Garður Canon 5D MK IV
|
|
Innlegg: 15 Feb 2013 - 22:49:23 Efni innleggs: |
|
|
Velkomin. _________________ Canon EOS 5D Mark IV - Tokina AT-X 16-28 f/2.8 Pro FX - EF 16-35 F/2.8L II USM - EF 100-400mm f/4.5-5.6L IS II USM - EF 50mm F/1.8 II - Viltrox JY-710 C3 Wireless Timer Remote Control - RC-6 Remote Controller and Manfrotto MK055XPRO3-BHQ2 tripod. |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Regnbogastelpa
| 
Skráður þann: 27 Sep 2009 Innlegg: 766 Staðsetning: Undir regnboganum ;P Canon 30D
|
|
Innlegg: 15 Feb 2013 - 23:08:20 Efni innleggs: |
|
|
Takk fyrir þetta
...það væri nú ekki leiðinlegt ef þú gætir sett hér inn myndina góðu af Víkurfjöru og þessa sem þú tókst af Valhöll! _________________ http://www.flickr.com/_rainbowgirl |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Micaya
| 
Skráður þann: 17 Des 2009 Innlegg: 5015
|
|
Innlegg: 15 Feb 2013 - 23:24:46 Efni innleggs: |
|
|
Regnbogastelpa skrifaði: | Takk fyrir þetta
...það væri nú ekki leiðinlegt ef þú gætir sett hér inn myndina góðu af Víkurfjöru og þessa sem þú tókst af Valhöll! |
Myndina af Víkurfjöru þyrfti ég að láta skanna. En hér er Valhallarmyndin, tekin með Olympus C-750 UZ, sem tekur (tók) 1 mynd á kannski 10 sekúndna fresti. Þetta var sem sé 1 skot í boði - mydin er bókstaflega beint úr vél.
Og takk öllum fyrir fallegu orðin !!!
 |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| semm
|
Skráður þann: 27 Okt 2012 Innlegg: 114
-Canon 5D classic
|
|
Innlegg: 15 Feb 2013 - 23:40:23 Efni innleggs: |
|
|
Sæl Díana, gaman að heyra svolítið um þig og vá, þvílík mynd. |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| semm
|
Skráður þann: 27 Okt 2012 Innlegg: 114
-Canon 5D classic
|
|
Innlegg: 16 Feb 2013 - 0:09:31 Efni innleggs: |
|
|
Haha, og flott prófílmynd  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| KáriK
|
Skráður þann: 08 Sep 2011 Innlegg: 163 Staðsetning: Reykjavík Nikon D7000
|
|
Innlegg: 16 Feb 2013 - 0:38:35 Efni innleggs: |
|
|
Gaman að sjá kynningu frá þér.
Frábær myndin þín af Valhöll, ekki leiðinlegt að byrja ferilinn á svona forsíðumynd! Alltaf gagnlegt og gaman að skoða myndirnar þínar, þú ert mjög fær ljósmyndari (og greinilega málari líka!).
Ég á samt erfitt með að skilja, svona í skammdeginu í febrúar, hvers vegna nokkur manneskja myndi flytja frá Spáni til Íslands  _________________ http://www.fluidr.com/photos/valkvidi/ |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|
Innlegg: 16 Feb 2013 - 12:33:26 Efni innleggs: |
|
|
Velkomin Díana. Þú ert ein af þeim hér sem áhugavert er að fylgjast með, sjá framförin liggur við dag frá degi og þá sérstaklega í byrjun. |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|