Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
|
Innlegg: 10 Sep 2012 - 23:03:59 Efni innleggs: Ó, úpps! Átti maður að byrja hér? |
|
|
Hæ, ég heiti Ragna og er Strandakona búsett í borginni vegna háskólanáms. Man ekki hvernig stóð á því að ég fór að taka myndir bara til þess að taka myndir (þ.e.a.s. til annars en að frysta epísk augnablik í fríum og fjölskyldusamkomum). Tók þónokkrar ágætis myndir með point&shoot vélum áður en ég eignaðist canon eos 1000d sem ég er enn að fikra mig áfram með en gengur frekar hægt, sérstaklega í að uppfæra aukabúnað og læra almennilega eftirvinnslu (er skíthrædd við photoshop O.o).
Er með síðu á allrahanda listasíðunni deviantArt.com:
http://ragnaice.deviantart.com/gallery/
...ooog einhverjar myndir segið þið?
Nokkrar gamlar (teknar á point&shoot...en er samt ennþá ánægð með þær):
Nokkrar nýrri (með elsku canon):
Líklegast bara komið gott
Vona að þessi síða gefi mér nokkur góð spörk í rassinn  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| ArnarBergur
| 
Skráður þann: 08 Feb 2009 Innlegg: 7515 Staðsetning: Reykjavík The Sexy thing - 6D
|
|
Innlegg: 10 Sep 2012 - 23:14:12 Efni innleggs: |
|
|
Sæl Ragna
Strandafólk er miklu meira en velkomið hingað (reyndar eru allir velkomnir)
á sjálfur ættir mínar að rekja um nánast alla vestfirði en þó aðallega á norðanverða vestfirðina. Trékyllisvík og alla leið norður á hornstrandir.
Best finnst mér þó að vera á Ísafirði og Norðurfirði og þar í kring.
Gaman að sjá nokkrar myndir frá þér og best þykir mér síðasta myndin, einföld og róleg
ég mæli með að láta photoshop bara eiga sig varðandi myndvinnsluna nema þú ætlir að fara út í miklar breytingar á myndum með lögum(layers) og annað slíkt.
Sjálfur nota ég 99% Lightroom í allri minni vinnslu.
kv.
Arnar Bergur _________________ Myndasmiður
www.facebook.com/abmyndir
www.flickr.com/arnarbg |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| vilhelm
| 
Skráður þann: 07 Ágú 2006 Innlegg: 1083
|
|
Innlegg: 10 Sep 2012 - 23:43:02 Efni innleggs: |
|
|
Sæl og velkomin Ragna!
Það eru margar skemmtilegar myndir inná deviantart hjá þér (seaweed shore, floating rocks & Co-existence t.d.).
Fyrst þú ert hrædd við photoshop þá mæli ég með því að þú nælir þér í Adobe Lightroom. Það er talsvert einfaldara í notkun en er samt fjári gott engu að síður.
Gangi þér vel (og skemmtu þér vel) með hobbýið! Mæli með því að þú einbeitir þér minna að því að uppfæra búnaðinn heldur en að uppfæra þekkingu á ljósmyndun sem slíkri (möo, lestu greinar, skoðaðu video, lestu bækur osfrv frekar en að pæla of mikið í því að kaupa nýja hluti) |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Frost
| 
Skráður þann: 10 Okt 2009 Innlegg: 489 Staðsetning: Borgarnes Nikon aðallega...
|
|
Innlegg: 10 Sep 2012 - 23:45:05 Efni innleggs: |
|
|
Já velkomin Ragna,
þessar myndir frá þér lofa bara góðu, sérstaklega þykir mér vænt um að sjá myndina frá Drangsnesi með Grímsey þarna útifyrir,
og ég sé glitta í bláa þakið á húsinu Sunnuhvoll þar sem ég fæddist einhverntíma á síðustu öld
og þarna er bryggjan þar sem ófáir marhnútar létu lífið langt um aldur fram spriklandi á önglinum hjá mér.
En ég er sammála Arnari Bergi, minimalistinn á síðustu myndinni er virkilega flottur |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| jho
| 
Skráður þann: 17 Mar 2012 Innlegg: 1161 Staðsetning: Akranes Canon EOS 5D Mark-III
|
|
Innlegg: 11 Sep 2012 - 11:01:21 Efni innleggs: |
|
|
Velkomin Ragna. Sammála fyrr ræðumönnum um að síðasta myndin hjá þér fellur mér best. Mjög falleg og róandi mynd. Þú ert greinilega með gott auga fyrir mynduppbyggingu. _________________ Kveðja, Jónas
http://www.flickr.com/photos/jonas-ottos/ |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| JóhannDK
| 
Skráður þann: 06 Jún 2006 Innlegg: 3607 Staðsetning: Norður-Sjáland Canon 5D
|
|
Innlegg: 11 Sep 2012 - 12:22:45 Efni innleggs: |
|
|
Velkomin. Mjög flottar myndir hjá þér og þá sérstaklega sú síðasta. Hún er alveg "á heimsmælikvarða". _________________ flickr <-- Smelltu hér til að skoða myndirnar mínar. Nei í alvöru... smelltu. |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| BGÁ
| 
Skráður þann: 14 Mar 2007 Innlegg: 3543 Staðsetning: Reykjavik Canon EOS 3
|
|
Innlegg: 11 Sep 2012 - 16:03:22 Efni innleggs: |
|
|
Velkomin. |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|
Innlegg: 11 Sep 2012 - 18:14:13 Efni innleggs: |
|
|
Takk allir, svakalegt egó-boost að fá hrós frá reyndara fólki
Kíki á þetta Lightroom við tækifæri
Frost skrifaði: | Já velkomin Ragna,
þessar myndir frá þér lofa bara góðu, sérstaklega þykir mér vænt um að sjá myndina frá Drangsnesi með Grímsey þarna útifyrir,
og ég sé glitta í bláa þakið á húsinu Sunnuhvoll þar sem ég fæddist einhverntíma á síðustu öld
og þarna er bryggjan þar sem ófáir marhnútar létu lífið langt um aldur fram spriklandi á önglinum hjá mér.
En ég er sammála Arnari Bergi, minimalistinn á síðustu myndinni er virkilega flottur |
Jeeeiii! Einhver sem veit hvað Drangsnes er, það gerir mig alltaf glaða  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| karibjorn
| 
Skráður þann: 23 Apr 2006 Innlegg: 511
Canon 5D Mark II
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Nilli
| 
Skráður þann: 08 Okt 2005 Innlegg: 2794 Staðsetning: Í jöklanna skjóli Nikon D3s & Nikon D600
|
|
Innlegg: 12 Sep 2012 - 7:36:13 Efni innleggs: |
|
|
Velkomin í hópinn Raggasnagga. Fínar myndir hjá þér. Passaðu svolítið upp á að hafa myndirnar ekki hallandi, sérstaklega þar sem hafið myndar sjóndeildarhringinn.
Bkv. Nilli _________________ Þórir N. Kjartansson
http://500px.com/thorirnk |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|
Innlegg: 12 Sep 2012 - 8:53:54 Efni innleggs: |
|
|
Nilli skrifaði: | Passaðu svolítið upp á að hafa myndirnar ekki hallandi, sérstaklega þar sem hafið myndar sjóndeildarhringinn.
|
Ohh, ég veit! Mér hefur verið bent á þetta áður en mér finnst alveg ótrúlega erfitt að sjá þetta. Hlýt að vera eitthvað skökk í hausnum :/ |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Nilli
| 
Skráður þann: 08 Okt 2005 Innlegg: 2794 Staðsetning: Í jöklanna skjóli Nikon D3s & Nikon D600
|
|
Innlegg: 12 Sep 2012 - 11:31:36 Efni innleggs: |
|
|
raggasnagga skrifaði: | Nilli skrifaði: | Passaðu svolítið upp á að hafa myndirnar ekki hallandi, sérstaklega þar sem hafið myndar sjóndeildarhringinn.
|
Ohh, ég veit! Mér hefur verið bent á þetta áður en mér finnst alveg ótrúlega erfitt að sjá þetta. Hlýt að vera eitthvað skökk í hausnum :/ |
Þetta verður nú sjaldnast alveg hárrétt þegar maður er að skjóta fríhendis. En þá er bara að leiðrétta það í eftirvinnslunni.
Bkv. Nilli _________________ Þórir N. Kjartansson
http://500px.com/thorirnk |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| bjarkih
| 
Skráður þann: 18 Júl 2007 Innlegg: 1293 Staðsetning: Akranes Canon 5D Mark III
|
|
Innlegg: 13 Sep 2012 - 19:26:40 Efni innleggs: |
|
|
Fínar myndir hjá þér, sérstaklega sú síðasta (hún er alveg í toppklassa). Eitthvað svo einföld en svínvirkar. _________________ FlickR síðan mín:
http://www.flickr.com/bjarkih/ |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|
Innlegg: 14 Sep 2012 - 10:47:12 Efni innleggs: |
|
|
Takk  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|