Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
| Myndarlegur
|
Skráður þann: 21 Feb 2006 Innlegg: 261
Canon 400D
|
|
Innlegg: 09 Mar 2008 - 20:01:04 Efni innleggs: Leiðbeiningar um mat á ljósmyndum |
|
|
'I liðinni viku var umræða hér á síðunni um mat á myndum og hvernig ætti að gefa ganrýni á uppbyggilegan hátt. Það lítur út fyrir að það sé þörf á leiðbeningum, eitthvað sem gæti verið gott að styðjast við þegar orða þarf skoðanir á annara verkum, - já og ekki síður til að gera sér betur grein fyrir gæðum og vanköntum þeirra mynda sem maður sjálfur er að brasa við.
'Eg fann í fórum mínum gamlan lista, sem vel má notast við, þýddi og endursagði hann og legg hann nú hér út, í von um að einhver geti haft gagn af.
Hverju veita skal athygli í mati á ljósmyndum
Tólf grunnreglur, skrifaðar í röð eftir mikilvægi þeirra
Àhrif Það sem þú tekur fyrst eftir - það sem virkar sterkast á þig. Það gæti verið það sem vekur athygli þína og heldur áhuga þínum föstum. Eftirfarandi punktar gætu komið til greina:
Hugmyndaauðgi
og nýsköpun Skemmtilegt hugarflug, eða að nálgast efnið á nýjan og óvæntan hátt; hugmyndarík úrvinnsla eða efnisnotkun; möguleiki á óhlutbundinni sýn (abstrakt) eða aðrar nýungar í t.d. formsköpun, sem lyfta verkinu að mörkum þess að vera list.
Stíll Þeir þættir, sem gera það að verkum að þínar myndir skera sig úr fjöldanum og er oft auðþekktar á handbragðinu. Það gæti verið:
Aðrar leiðir að skilja og túlka efnið; aðrar leiðir í meðhöndlun efnisins; algjörlega nýr still; raunverulegt/ekta og ekki gerfilegt;
Nýskapandi og eftirtektarvert.. Séreinkenni geta nást á margan hátt.
Myndbygging Góð staðsetning af aðalatriðinu í myndfletinum; þekking á - og notkun af línum til að auka áhrif; velheppnuð notkun á endurtekningum eða andstæðum; jafnvægi og flæði í myndefni á fletinum og margir fleiri þættir, sem of langt er að telja upp.
Sýning myndar Góður rammi og vandað val á bakgrunni getur aukið áhrif og gæði myndarinnar; litur á bæði ramma og bakgrunni skiptir máli; að þora að vera öðruvísi getur verið meðvirkandi þáttur þegar fyrstu áhrif eru metin.
Litajafnvægi Myndin verður að vera góð, tæknilega. Litaval þarf að hæfa efninu;
Val af sterkum og andstæðum litum, óvenjuleg og hugmyndarík notkun ásamt sýnilegri þekkingu á tákngildi lita, getur skipt máli.
Aðalatriði Aðalatriði myndarinnar á að vera augljóst. Auðgað skal leita þangað ósjálfrátt og aðalatriðið verður að geisla styrk og meiningu.
Smáatriðin eru mikilvæg en mega aldrei yfirgnæfa.
Ljósnotkun Góð notkun á ljósinu er mjög mikilvæg. Til dæmis: góð grunnlýsing, góð lýsing á portrett myndum, ljósið notað til að skapa og auka áhrif. Góð notkun á ljósinu er leiðin til að túlka séreinkenni persónu eða hlutar.
Myndefnið Er myndefnið áhugavert fyrir fleiri en ljósmyndarann?Hvernig tókst túlkun efnisins? Hvernig er notkun á upptökuvinkli með tilliti til efnisins; persónur myndast misjafnlega, hefur
modellið næga útgeislun; hvernig er val á andstæðum, ungur- gamall, heitur-kaldur o.s.frv.
Myndgæði Mikið af þessu hefur verið nefnt lauslega: Góður kontrast í myndinni; notkun millitóna í sv/hv; jafnvægi lita; meðvituð stjórnun/nýting á ljósi; Góðir vinklar og myndbygging; bakgrunnur
hafður skír eða óskír með tilliti til aðaefnis; einföld mynd er oft sú sterkasta!
Tækni Tækni er einn af hornsteinunum í ljósmyndun. Hvernig tókst að velja tækni með tilliti til myndefnið og hvernig styður tæknileg útfærsla þau áhrif, sem ljósmyndarinn vildi ná fram? Er hin tæknilega útfærsla og handbragð nægilega godt? Tókst að
flytja ljósmyndarans hugmynd í áhugavert form sem mynd?
Frásögnin Hefur myndin einhvern boðskap/sögu að segja mér? Er þessari frásögn lokið innan ramma myndarinnar eða sakna eg enhvers?
Hafði frásögnin sterk áhrif; skapaði hún hræringar í tilfinnalífi mínu eða setti hugarflug mitt í gang? Var frásögnin skír og augljós |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| dvergur
| 
Skráður þann: 27 Ágú 2007 Innlegg: 3284
|
|
Innlegg: 17 Nóv 2009 - 17:18:05 Efni innleggs: |
|
|
Mér finnst magnað að enginn hafi sýnt þessu áhuga á sýnum tíma. Vanþakklætið í ykkur...  _________________
 |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Steini Fjall
| 
Skráður þann: 06 Okt 2006 Innlegg: 70 Staðsetning: Reykjavík Nikon D3
|
|
Innlegg: 17 Nóv 2009 - 18:06:48 Efni innleggs: [vitlaus þráður] Þá verð ég senda þessa |
|
|
færi þetta yfir í gagnrýni.
Síðast breytt af Steini Fjall þann 17 Nóv 2009 - 18:57:24, breytt 1 sinni samtals |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Myndarlegur
|
Skráður þann: 21 Feb 2006 Innlegg: 261
Canon 400D
|
|
Innlegg: 17 Nóv 2009 - 18:46:05 Efni innleggs: |
|
|
Ha, til hvers, Steini?
Þessi þráður er um mat á ljósmyndum, ekki gagnrýnisþráður, ef það er það sem þú átt við. |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| LOF
| 
Skráður þann: 07 Apr 2007 Innlegg: 1695 Staðsetning: Reykjavík Canon EOS D5 Mark II
|
|
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| klararakel
|
Skráður þann: 02 Jún 2009 Innlegg: 625 Staðsetning: Kópavogur city Canon EOS 20D
|
|
Innlegg: 18 Nóv 2009 - 8:41:07 Efni innleggs: |
|
|
Myndarlegur skrifaði: | Ha, til hvers, Steini?
Þessi þráður er um mat á ljósmyndum, ekki gagnrýnisþráður, ef það er það sem þú átt við. |
væntanlega svo að fólk sem skoðar spjallið þar sjái þetta og vonandi taki það til sín þegar það gagnrínir. _________________ Canon EOS rebelX-filmuvél til lit ljósmyndunar| Penntax k1000-filmuvél til SH ljósmyndunar| Sigma 100-300mm, 4.5|Canon 50mm, 1.8|Canon 18-55mm, 5-5.6|Penntax 200mm |Penntax 50mm, 1.7
http://www.flickr.com/photos/klararakel/ |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| Micaya
| 
Skráður þann: 17 Des 2009 Innlegg: 5015
|
|
Innlegg: 21 Nóv 2010 - 21:03:46 Efni innleggs: |
|
|
Takk, Myndarlegur.
Þetta er gagnlegur lestur
Og takk öllum sem nenna að gagnrýna, eða gefa einhver feed-back við myndir annarra!
 |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
| HoT
|
Skráður þann: 02 Mar 2010 Innlegg: 80 Staðsetning: Garðabæ Canon 5D Mark II
|
|
Innlegg: 21 Nóv 2010 - 22:28:31 Efni innleggs: |
|
|
vel fram sett meginatriði sem standa alltaf fyrir sínu  |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|